Árás á frjálsan fjölmiðil er atlaga að lýðræðinu

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 24. júní 2024

Stjórn BÍ hefur í dag samþykkt eftirfarandi ályktun:

Árás á frjálsan fjölmiðil er atlaga að lýðræðinu

Það er til marks um mikilvægi frjálsra fjölmiðla í lýðræðissamfélögum að þeir skuli vera fórnarlamb árása á borð við þá sem miðlar Árvakurs, þar á meðal Morgunblaðið, mbl.is og K100, urðu fyrir í gær. Það er ömurlegt til þess að vita að rússnesk glæpasamtök séu nú með gögn fyrirtækisins í gíslingu og að árásin hafi haft alvarleg áhrif á starfsemi miðlanna. Árás sem þessi er ekkert annað en atlaga að grunnstoðum lýðræðisins og frjálsri fjölmiðlun sem við sem samfélag þurfum að taka alvarlega og fordæma. BÍ treystir því að yfirvöld rannsaki árásina gaumgæfilega í ljósi alvarleika hennar og geri ráðstafanir til að verja sérstaklega mikilvæga samfélagslega innviði á borð við fréttamiðla. Stöndum vörð um fjölmiðlana og lýðræðið því blaðamennska hefur aldrei verið mikilvægari.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.