Áróðursstríð gegn hryðjuverkum

admin • 2. maí 2016

„Áróðursstríð gegn hryðjuverkum: Tilraunir bandarískra stjórnvalda til að hafa áhrif á fréttaflutning og almenningsálitið“ er yfirskrift opins fundar sem haldinn verður miðvikudaginn 4. maí kl. 12:00-13:00 í HT-101 (Háskólatorg) við Háskóla Íslands. Um er að ræða fyrirlestur þar sem Dr. Emma Briant fjallar um tilraunir bandarískra stjórnvalda í kjölfar hryðjuverkanna 11. september til að móta og hafa áhrif á umfjöllun fjölmiðla um baráttu þeirra í svonefndu stríði gegn hryðjuverkum. Í fyrirlestrinum mun hún m.a. vísa til viðtala sem hún hefur átt við háttsetta heimildamenn innan bandaríska stjórnkerfisins, hermálayfirvalda og öryggisþjónustunnar, auk viðtala við blaðamenn og almannatengslafulltrúa, sem varpa ljósi á tilraunir bandarískra yfirvalda til að hafa áhrif á fréttaflutning fjölmiðla og almenningsálitið. Fundurinn er á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við meistara- og diplómanám í fjölmiðla- og boðskiptafræði og meistaranám í blaða- og fréttamennsku.

Dr. Emma Briant er lektor í blaðamennskufræðum við Háskólann í Sheffield.  Hún er höfundur bókarinnar Propaganda and Counterterrorism: Strategies for Global Change, sem kom út árið 2014 og meðhöfundur bókarinnar Bad News for Refugees (2013). Dr. Briant hefur birt fjölda greina í virtum ritrýndum tímaritum á undanförnum árum.

Fundarstjóri: Ragnar Karlsson, aðjúnkt og verkefnastjóri meistara- og diplómanáms í fjölmiðla og boðskiptafræðum við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.  Fundurinn fer fram á ensku og er öllum opinn.

 

Nánari upplýsingar: www.ams.hi.is

Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.