Sjálfs-eftirlit blaðamanna forsenda trúverðugleika

admin • 2. maí 2016

Samstaða um siðamál og siðareglueftirlit blaðamanna sjálfra með blaðamennsku eru grunnforsendur þess að fjölmiðlar í Evrópu geti notið almenns trausts, að mati forustufólks, mannréttindahópa,  stofnana og blaðamannafélaga í aðdraganda Alþjóðadags fjölmiðlafrelsis, sem  er á morgun, 3. maí.

Þannig sagði Dunja Mijatovic, forstöðumaður fjölmiðlafrelsisdeildar ÖSE fulltrúum á aðalfundi Evrópusambands blaðamanna í Sarajevo í síðustu viku að eina leiðin til að tryggja gegnsæi, ábyrgð og raunverulegt fjölmiðlafrelsi væri að blaðamenn héldu sjálfir uppi eftirliti með og fjölluðu um siðferðileg álitamál í greininni (self-regulation).  Dunja Mijatovic, sem var hér á Íslandi í fyrra og flutti þá opinn fyrirlestur  um fjölmiðlafrelsi, hvatti EFJ fulltrúa á fundinum í Sarajevo til að standa vörð um sjálfs-eftirlit fjölmiðlamanna. Umræða um sjálfs- eftirlit blaðamanna er nú áberandi og verður  viðfangsefni á dagskrám víða á Alþjóðadegi fjölmiðlafrelsis á morgun.

Sjá áhugaverða umfjöllun hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.