Stjórnvöld auglýsa styrki til landsbyggðarmiðla

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 8. september 2026

Stjórnvöld hafa auglýst eftir umsóknum um styrki til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Umsóknarfrestur er til 1. október.

Í auglýsingu frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu segir að markmið með styrkjunum sé að efla starfsemi landsbyggðarmiðla "enda gegni þeir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðji með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf".

Til úthlutunar eru 15 milljónir króna. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.