Við þurfum að ræða um blaðamennsku - 1. þáttur Blaðvarpsins kominn í loftið

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 11. september 2026

Fyrsti þáttur Blaðvarpsins, hlaðvarps Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Yfirskrift hans er: Við þurfum að tala um blaðamennsku. Blaðvarpið er aðgengilegt í öllum helstu streymsiveitum - og einnig hér að neðan. Stjórnendur Blaðvarpsins eru Guðmundur Pálsson og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í fyrsta þætti ræða þau við Eyrúnu Magnúsdóttur, stofnanda og ritstjóra Gímaldsins og Kolbein Tuma Daðason, ritstjóra fréttastofu Sýnar um blaðamennsku og nauðsyn þess að ræða stöðu hennar og mikilvægi.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.