Blaðamannaverðlaunin 2023 - frestur til að skila inn tilnefningum er 5. febrúar

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 17. janúar 2024
Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 21. skipti þann 15. mars næstkomandi. Frestur til að skila inn tilnefningum til dómnefndar er 5. febrúar.

Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu, þann 8. mars.

Eins og undanfarin ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:

  • Besta umfjöllun ársins 2023
  • Viðtal ársins 2023
  • Rannsóknarblaðamennska ársins 2023
  • Blaðamannaverðlaun ársins 2023

Þau sem vilja senda dómnefndinni efni sem birt var á síðastliðnu ári sem þeim þykir eiga erindi í að keppa um að hljóta viðurkenningu skulu gera það rafrænt. Á  press.is  er  þar til gert innsendingarhólf, en einnig má koma tilnefningum til skila á netfangið  bladamannaverdlaun@press.is  eða beint á skrifstofu félagsins að Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma. Tilheyrandi gögn og röksemdafærsla skulu fylgja hverri tilnefningu. 

Stjórnin

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.