Páska- og sumarúthlutun orlofshúsa

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 18. janúar 2024

Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna úthlutunar í orlofshús BÍ um páska og í sumar í orlofshúsunum á Akureyri, í Stykkishólmi og í Brekkuskógi. 

Sótt er um á  orlofsvef BÍ  undir tenglinum páskar og sumar.  Umsóknarfrestur vegna páskaúthlutunar 27. mars til 3. apríl er til 1. mars næstkomandi og vegna sumarsins 31. maí til 30. ágúst til og með 10. mars næstkomandi. Nánar má lesa um úthlutunarreglur hér á  Press.is. 

Leigugjald vegna vikuleigu frá föstudegi til föstudags í Stykkishólmi og Stóru-Brekku er kr. 38.500, vegna Akureyri 30.800 og kr. 24.750 vegna Litlu-Brekku.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.