Blaðamennska ekki debet og kredit

Guðmundur Pálsson • 29. september 2026

Í öðrum þætti Blaðvarpsins, hlaðvarps BÍ, er rætt við Hauk Holm blaðamann til 40 ára um ferilinn, breytingar á landslagi fréttamiðla, aðgengi blaðamanna að vettvangi og fleira. Meðal þess sem hann ræðir sérstaklega er sú ákvörðun Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir: „Mér finnst það algjörlega hrikalegt og ef þetta er sett upp í Excel eða eitthvað slíkt, þá er hægt að réttlæta þessa ákvörðun. En ritstjórn er ekki Excel-skjal. Fréttir og blaðamennska er ekki debet og kredit. Mér fannst það hrikalegar fréttir og þær komu mér á óvart,“ segir Haukur. „Þetta er vont fyrir fagið, þetta er vont auðvitað fyrir fólkið sem vinnur þarna, þetta er vont fyrir bara umræðuna. Þetta er bara alfarið vond hugmynd.“

Blaðvarpið er hlaðvarp Blaðamannafélags Íslands. Þar beinum við sjónum okkar að blaðamennsku, fjölmiðlum og tengdum málefnum. Veltum fyrir okkur aðstæðum blaðamanna og fjölmiðla og því sem efst er á baugi í faginu. Hægt er að hlusta á Blaðvarpið á öllum hlaðvarpsveitum.
 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.