Netnámskeið í gervigreindarkerfum fyrir blaðamennsku

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 30. september 2026

Blaðamönnum og stjórnendum fjölmiðla býðst að skrá sig á fimm vikna netnámskeiðið Understanding and Building AI Systems for Journalism , sem hefst mánudaginn 5. október og stendur til 8. nóvember, en hægt er að nálgast fyrirlestrana hvenær sem þátttakendum hentar. Námskeiðið kostar 99 dollara og er hægt að sækja um endurgreiðslu á 75% þess gjalds í gegnum endurmenntunarsjóð BÍ. 

Námskeiðið er á vegum Knight Center for Journalism in the Americas við Texas-háskóla í Austin. Kennari er Aimee Rinehart, stofnandi Frontier Collective og fyrrverandi yfirvörustjóri gervigreindarstefnu hjá Associated Press. Hún mun leiðbeina blaðamönnum og stjórnendum um hvernig innleiða megi gervigreind á ritstjórnir á hagnýtan hátt, meðal annars með því að greina upplýsingaskipulag eigin ritstjórnar og traust gagna. Þá fá þátttakendur kennslu í því að smíða sinn eigin þekkingarbanka í Obsidian og tengja gervigreindaraðstoðarmann við hann með svokölluðum MCP-þjóni og skoða hvernig sama uppbygging gæti nýst á ritstjórn. 

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.