Blaðamenn ofsóttir í Túnis

admin • 5. október 2012

Í yfirliti frá samtökunum Fréttamenn án landamæra sem sent var út í gær kemur fram að meira en 130 dæmi eru um alvarlegar árasir á prentfrelsi fjölmiðla í Túnis það sem af er þessu ári. Þar af eru 84 tilvik þar sem um era ð ræða beinar líkamsárásir á blaðamenn. Að sögn Oliviu Grey talsmanns samtakanna í Túnis eru að jafnaði um þrjár árásir af þessu tagi í viku hverri. “Vorið” sem fylgdi því að einræðisherrann Zine El Abidine Ali var rekinn frá völdum í janúar 2011 hefur m.a. birst í því að blaðamenn hafa orðið skotmark jafnt lögreglu sem mótmælenda, einkum róttækra islamista sem segja siðspillingu samofna fréttaflutningi blaðamanna. Fulltrúar stjórnvalda segja hins vegar að hreinsa þurfi til í blaðamannastétt og losna við leynilega stuðningsmenn fyrri stjórnvalda.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.