Milljarður á Facebook!

admin • 5. október 2012

Í gær tilkynnti Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook að milljarður manna væri nú að nota Facebook á mánuði hverjum. Það er gríðarlega mikilvægur áfangi fyrir fyrirtækið sem hefur verið í ólgusjó undanfarið vegna ýmissa mála. Mark Zuckerberg skrifaði á eftirfarnadi á vegg sinn í gær:

„Í dag er meria en milljarður manna að nota Faacebook í hverjum mánuði. Ef þú er að lesa þetta: takk fyrir að sýna mér og mínu litla liði þann heiður að fá að þjóna þér. Það að aðstoða milljarð manns við að tengjast er stórkostlegt, og gerir mann auðmjúkan og þetta er það sem ég er stoltastur af í lífi mínu. Ég er staðráðinn í að nota hvern dag til að gera Facebook enn betra fyrir þig og vonandi tekst okkur í sameiningu einhverntíma að tengja saman restina af heiinum.“ Nú í morgun voru komin tæplega 31 þúsund like á þetta.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.