Breytingar hjá DV

admin • 16. janúar 2015

Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson hafa verið ráðnir fréttastjórar á DV og dv.is. Þeir eru fjölmiðlafræðingar úr HA, hafa langa starfsreynslu á DV og hafa verið lykilmenn í útgáfu blaðsins um árabil m.a. sem vaktstjórar. Samhiða breytist starfsvettvangur Jóhanns Haukssonar sem færist úr stöðu fréttastjóra yfir í stöðu ritstjórnarfulltrúa. Þá er blaðið að flytja ritstjórnarskrifstofur sínar úr miðbænum og upp í Kringlu  þar sem þær verða í húsnæði ásamt öðrum miðlum sem tengjast nýjum eigendum.
  Sjá einnig frétt hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.