Penninn eða sverðið - er tjáningarfrelsið í hættu?

admin • 16. janúar 2015

Er penninn máttugri en sverðið? Hverjar eru mögulegar ástæður voðaverkanna á ritstjórnarskrifstofum Charlie Hebdo?  Af hverju er myndbirtingabann í islam? Hvaða áhrif geta voðaverkin haft á tjáningarfrelsi okkar og önnur mannréttindi? Er tjáningarfrelsið aðeins mikilvægt á tyllidögum?
Þetta og fleira verður rætt á hádegisfundi fjölmiðlanefndar og Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands sem fram fer í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, þriðjudaginn 20. janúar 2015. Fundurinn hefst kl. 11:50 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. 

Frummælendur verða Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki, Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar og Þórir Jónsson Hraundal sagnfræðingur.

Þórir Jónsson Hraundal talar um bakgrunn myndbirtingabanns í islam, ýmsar algengar hugmyndir Vesturlandabúa um múslima og trú þeirra, og veltir upp nokkrum spurningum um mögulegar undirliggjandi ástæður voðaverkanna í París.

Elfa Ýr Gylfadóttir fjallar um hvaða áhrif voðaverkin í París geti haft á tjáningarfrelsi og borgaraleg réttindi á Vesturlöndum.

Elfa Ýr fjallar jafnframt um hvað beri að varast og leggur áherslu á að tjáningarfrelsi eru réttindi sem við höfum aflað okkur á löngum tíma og þau þurfi að verja og vernda.

Róbert H. Haraldsson fjallar um tjáningarfrelsið og mörk þess í heimspekilegu samhengi og rétt einstaklingsins til að hugsa frjálslega og tjá hugsanir sínar óþvingað og óttalaust. Hann t fjallar sérstaklega um tjáningarfrelsið í tengslum við birtingu trúarlegra skopmynda í Jyllands-Posten og í tímaritinu Charlie Hebdo.

Að framsögum loknum verða fyrirspurnir og almennar umræður.

Fundarstjóri verður Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ og nefndarmaður í fjölmiðlanefnd.

Miðað er við að fundurinn standi til kl. 13:10.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.