Dómstóll vill að blaðamaður beri vitni gegn heimildamanni

admin • 24. febrúar 2014

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hefur mótmælt harðlega ákvörðun í dómstóls í Sviss að fyrirskipa að blaðamaður beri vitni  gegn heimildamanni sínum. Málið snertir  fíkniefnasala sem fjallað var um í  þýskumælandi blaðinu  Basler Zeitung í október 2012.

 „Þetta er ósvífin árás á rétt blaðamanna til að vernda heimildarmenn sína,“ segir Ricardo Gutierrez framkvæmdastjóri EFJ. Hann bætir við að „vernd heimildamanna er réttur sem tryggður er í sambandsstjórnarskrá Sviss og í Mannréttindasáttmála Evrópu.“

 Blaðamannafélag Sviss  hefur einnig fordæmt þessa ákvörðun réttarins  og sagt hana hneyksli. „Þetta er ákvörðun sem beinlínis virkar gegn yfirvöldum og  almannahagsmunum enda hefði rannsókn á málinu aldrei farið af stað ef ekki hefði verið fyrir þessar upplýsingar,“ segir  Urs Thalmann, framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.