Samningar samþykktir

admin • 19. febrúar 2014

Nýgerður kjarasamningur Blaðamannafélags Íslands við Samtök atvinnulífsins var borinn undir atkvæði félaga í BÍ í leynilegri atkvæðagreiðslu á kjörfundi í dag miðvikudaginn 19. febrúar.  345 voru á kjörskrá og greiddu 69 atkvæði eða 20%.  Já sögðu 60 eða 86,95%, nei sögðu 7 eða 10,15% og auðir seðlar voru 2 eða 2,9%.  Kjarasamningurinn er því samþykktur.  Hann er grunnsamningur um kaup og kjör og blaðamanna og gildir afturvirkt frá 1. jan. sl. og felur í sér að öll laun og kjaratengdir liðir hækka um 2,8% frá þeim tíma.  Áður hafa verið samþykktir nýir sérsamningar við DV, Birting og Fréttatímann.  BÍ hefur því gert kjarasamninga við alla samningsaðila sína og gilda samningarnir til ársloka 2014.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.