EFJ fagnar samþykkt Evrópuráðs um réttindi fjölmiðla

admin • 30. janúar 2015

  Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hefur fagnað tilkomu skýrslu þings Evrópuráðsins um  „Vernd réttinda fjölmiðla í Evrópu“, en lýsir um leið yfir áhyggjum vegna þróunar fjölmiðlafrelsis víða um álfuna.  „Þó svo að við fögnum samþykkt þessarar skýrslu, þá verður að hafa í huga að þar er athyglinni líka beint að þróun í Evrópu sem ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af. Sérstaklega á þetta við um lönd þar sem alvarleg brot gegn fjölmiðlaréttindum eru ekki óalgeng,“ segir Mogens Blicher Bjerregård, forseti EFJ. Hann bætir við að lönd sem sérstaklega séu nefnd í skýrslunni, þar á meða Azerbajan, Ungverjaland, Rússland, Tyrkland og Úkraína þurfi að gera átak í sínum málum og koma réttindamálum fjölmiðla í lag.

Gvozden Sre?ko Flego, þingmaður á Evrópuráðsþinginu og talsmaður nefndarinnar sem stóð að skýrsluni er frá Króatíu og hefur han n tekið mjög einarða afstöðu í þessum málum og gagnrýnt harðlega tilraunir fulltrúa nokkurra ríkja til að neita því að fjölmiðlafrelsi sé skert í löndum þeirra.  Hann bendir á að skýrslan sé byggð á staðreyndum sem aflað hafi verið af sérfræðingum og öðru fólki sem sé á staðnum og að vinna í því umhverfi sem um ræðir.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.