Silenced sýnd annað kvöld!

admin • 30. janúar 2015

Ástæða er til að minna á að annað kvöld, laugardagskvöldið 31. janúar (20:00) mun IMMI standa að  sérstakri frumsýningu  heimildarmyndarinnar Silenced í Tjarnarbíói. Myndin fjallar um þrjá uppljóstrara – þau Jesselyn Radack, áður hjá dómsmálaráðuneyti BNA, Thomas Drake, áður hjá NSA og John Kiriakou, áður hjá CIA, en Kiriakou var fyrstur til að opinberlega greina frá vatnspyntingum CIA og afplánar nú fangelsisdóm í kjölfar þessa.

Athyglinni er beint að þeim breytingum sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum í kjölfar árásanna 11. september 2001 og stöðu uppljóstrara þar í landi.

Myndin er eftir leikstjórann James Spione sem áður hefur verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir mynd sína An Incident in New Baghdad.

Sjá trailer hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.