Ekki tilefni til rannsóknar á RÚV

Birgir Guðmundsson • 9. júlí 2018

Samkeppniseftirlitið birti í dag frummat sitt vegna kvörtunar Símans yfir háttsemi Ríkisútvarpsins  á auglýsingamarkaði vegna HM í knattspyrnu.  Niðurstaða eftirlitsins er að ekki sé tilefni til að hefja formlega rannsókn á málinu á grundvelli þeirra tveggja lagagreina sem  eiga við í þessu máli, þ.e. annars vegar að RÚV hafi misnotað sér markaðsráðandi stöðu eða hins vegar að opinber aðili megi ekki með athöfnum sínum takmarka samkeppni.

Hins vegar er það á verksviði Fjölmiðlanefndar að hafa eftirlit með því hvort RÚV hafi bortið ákvæði í lögum um RÚV og fram kemur í frummatinu að  Fjölmiðlanefnd er að skoða málið hjá sér en þeirri athugun er ekki lokið.    Samkeppniseftirlitið gefur aðilum á markaði kost á því í frummats freinargerð sinni að koma frekari athugasemdum á framfæri vegna málsins, áður en endanleg ákvörðun er tekin um það hvort formleg rannsókn verði hafin eða því lokið án frekari athugunar.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.