Erla vann í þriðja sinn!!!

admin • 2. júní 2015

Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi í morgun íslenska ríkið brotlegt gegn 10. grein Mannréttindasáttmála Evrópu í máli sem Erla Hlynsdóttir blaðamaður höfðaði. Er þetta í þriðja sinn sem Erla vinnur mál fyrir MDE gegn íslenska ríkinu og er nánast einsdæmi að einn og sami einstaklingurinn vinni svo mörg mál fyrir dómstólnum. Málið snýst um grein í DV frá 2007 um kókaínsmyglmál og voru aðilar nafngreindir í umfjölluninni. Hæstiréttur hafði síðan dæmt Erlu og þáverandi ritstjóra Sigurjón M Egilsson brotleg  í máli sem reis vegna umfjöllunarinnar.

Gunn­ar Ingi Jó­hanns­son, lögmaður Erlu,  var í viðtali við  mbl.is í morgun og kvaðst þar ánægður með niðurstöðuna.  Hann hefur verið lögmaður Erlu í  ölum þremur málunum auk þess sem hann var lögmaður Bjarkar Eiðsdóttur sem einnig vann mál fyrir MDE.

 Sjá einnig umfjöllun hér  og  hér  og hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.