Nýstárleg og óhefðbundin umfjöllun verðlaunuð

admin • 27. maí 2015

Evrópska blaðamannamiðstöðin (EJC) hefur tilkynnt um sigurvegara í „Frumkvöðlasamkeppni í þróunarumfjöllun“ en það er samkeppni þar sem athyglinni er beint að fréttaflutningi og umfjöllun um málefni þróunar þar sem nálgun og viðfangsefni eru nýstárleg og óhefðbundin.  Alls fengu 133 verkefni tilnefningu til verðlaunanna en 14 þeirra hafa nú verið valin til verðlauna og er verðlaunafé í heild um 250 þúsund evrur. Verðlaunaverkefnin koma frá Belgíu, Danmörku,Ítalíu, Spáni, Hollandi og Bretlandi og fjalla um mjög ólíka hluti.  Þannig má nefna umfjöllun um fjölmenningarlegt heilbrigðiskerfi í Bólivíu, tilraunir við að útrýma mænusótt, og úttekt á því hvernig rusl sem ruslatínslufólk á Haiti og á Indlandi endar sem íhlutir í 3D prentara, sem dæmi um það sem verkefnin fjalla um. Almennt er umfjöllunin í þessum verkefnum margþætt, á nýstárlegu miðlunarformi og óhefðbundin.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.