Fjölmiðlaviðukenning Jafnréttisráðs

admin • 19. ágúst 2016

Jafnréttisráð  sendi í dag frá sér eftirfarandi auglýsingu um tilnefningar til fjölmiðlaviðurkenningar:

 

„Í ár mun Jafnréttisráð, ásamt ráðherra jafnréttismála, veita sérstaka fjölmiðlaviðurkenningu aðilum sem hafa skarað fram úr þegar kemur að umfjöllun um mál sem tengjast jafnrétti kynjanna á liðnu ári.

Viðurkenningu getur hlotið: 

Fjölmiðill sem skarað hefur fram úr á sviði jafnréttismála, svo sem hvað varðar efnistök, umfjöllun og miðlun efnis. 

Þáttur, þáttaraðir, greinar eða annað afmarkað efni þar sem jafnrétti er sérstakt viðfangsefni eða leiðarstef. 

Einstaklingur sem með störfum sínum á fjölmiðli hefur unnið sérstaklega að jafnréttismálum.

 

Tilnefningar skulu vera rökstuddar. Til að koma til álita við veitingu viðurkenningarinnar þarf viðkomandi aðili að vera tilbúinn að veita frekari upplýsingar. Tilnefningum skal skila eigi síðar en 20. september 2016 á rafrænu formi á netfangið jafnretti@jafnretti.is

(Með fjölmiðli er átt við stofnun eða fyrirtæki, lögaðila, sem safnar, metur og setur fram upplýsingar í því skyni að dreifa þeim reglulega til umtalsverðs fjölda fólks á tilteknu svæði (Menntamálaráðuneytið, apríl 2005).“

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.