Umræður um ritskoðun Facebook

admin • 25. ágúst 2016

Áhugaverð umræða hefur skapast að undanförnu á Norðurlöndum  um ritstýringu á Facebook og hvernig hún fer fram, hvað sé ritskoðað og á hvaða forsendum. Umræðan snýst ekki síst um ritstjórnarvald og gríðarlegt eftirlit sem fyrirtækið Facebook hefur. Tilefnið er birting í blaðamannsins og rithöfundarins  Tom Egeland á 40 ára gamalli mynd með færslu sem hann setti á Facebook.  Myndin er heimsfrægt tákn um hrylling Vietnamstríðsins og sýni hina þá 9 ára gömlu Kim Phuch  hlaupa nakta og  gátandi  í burtu undan napalmsprengjum og sjá má hvernig hold hennar brennur.  Facebook kom síðan inn og ritskoðaði birtingu myndarinnar og taldi hana ekki birtingarhæfa samkvæmt reglum fyrirtækisins um nekt.  Þetta hefur ýmsum þótt merkileg niðurstaða, enda um einstaka táknmynd úr mannkynssögunni að ræða.  Hafa ýmsir síðan kannað hversu langt Facebook gengur í ritskoðun á þessum grundvelli og setti m.a. vefsíða norska Blaðamannsins inn þessa mynd þar sem búið var að gera hana óskýra, en það gilti einu, hún var ritskoðuð. Aðrir hafa prófað að setja inn myndir af heimsþekktum listaverkum þar sem nekt kemur við sögu og virðist það á endanum flest ritskoðað líka.

Sjá umræður  hér  og hér

 

 

 

 

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.