Fjórða valdið - bíómynd

admin • 8. janúar 2016

Á dögunum var birt á netinu heimildamyndin „Fjórða valdið“ eða   " The Fourth Estate“ sem er bresk mynd   og ekki unnin í hagnaðarskyni. Myndin er mjög gagnrýnin á fjölmiðla og sérstaklega áhrif markaðsvæðingar á störf og starfshætti á breskum miðlum og byggir á gagnrýnum (vinstri) viðhorfum til valdakerfis á Vesturlöndum og samþjöppunar eignarhalds. Eflaust eru ákveðnir þættir myndarinnar umdeilanlegir, en óhætt er að segja að í henni endurspeglist áhyggjur af og gagnrýni á stöðu fjölmiðla sem áberandi eru hjá stórum hópum fjölmiðlaáhugafólks, ekki síst blaðamanna.  Myndin er nokkuð löng eða um 80 mínútur en áhugsamir geta nálgast hana í gegnum hlekkinn hér að neðan.   Myndina gerður þau Lee Salter and Elizabeth Mizon.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.