Síðustu forvöð að koma með tillögur - Samkeppni um nafn á sal BÍ

admin • 10. janúar 2016

 Á morgun, 12. janúar,   mun verða lokað fyrir móttöku á tillögum um nafn á nýjan sal Blaðamannafélagsins og þeir sem  enn vilja koma með tillögu þurfa því að drífa í því.  Eins og greint hefur verið frá bæði hér á press.is og í Blaðamanninum hefur Blaðamannafélagið útbúið glæsilegan veislusal í húsakynnum sínum við Síðumúla 23. Líkt og Hjálmar Jónsson, formaður BÍ, boðaði í síðasta hefti Blaðamannsins fer nú fram samkeppni um nafn á veislusalinn, sem verður í raun félagsmiðstöð blaðamanna, og verða veitt verðlaun fyrir það nafn sem valið er. Verðlaunin eru ein vika að eigin vali í einu af orlofshúsum.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.