BÍ: Forkastanlegur og hörmulegur atburður

admin • 7. janúar 2015

Blaðamannafélag Íslands ásamt Alþjóðasambandi blaðamanna, Evrópusambandi blaðamanna og blaðamannafélögum um allan heim  hafa fordæmt drápin og árásina á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo í París.

 “Við stöndum agndofa gagnvart þessum forkastanlega, fordæmalausa og  hörmulega atburði og óskiljanlegt og að men skuli grípa til voðaverka af þessu tagi.  Þetta brýnir okkur öll til að standa enn betur vörð um tjáningarfrelsið sem er undirstaða lýðræðislegra samfélagshátta,” segir Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands.

Svipaðar yfirlýsingar hafa í dag verið að koma frá forystumönnum blaðamannafélaga um allan heim og umræða um tjáningarfrelsi og öryggi blaðamanna á eigin ritstjórnum hefur víða farið af stað.

Sjá einnig hér  

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.