Tilnefningafrestur til 23. janúar

admin • 7. janúar 2015

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 12. skipti þann 28. febrúar næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en  skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 23. janúar .
Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

• Besta umfjöllun ársins 2014
• Viðtal ársins 2014
• Rannsóknarblaðamennska ársins 2014
• Blaðamannaverðlaun ársins 2014

Hægt er að senda inn tilnefningar  til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti – með hnappnum „ Tilnefnið hér “ hér til hliðar á síðunni.

 

 Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í laugardaginn 21. febrúar og viku síðar, þann 28. febrúar  verða verðlaunin sjálf afhent samhliða því að sýning Blaðaljósmyndarafélagsins „Myndir ársins“ verður opnuð.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.