Hallgrímur ritstýrir DV

admin • 8. september 2014

Hallgrímur Thorsteinsson er tekinn við sem nýr ritstjóri á DV en Reynir Traustason hefur verið leystur undan störfum sínum fyrir blaðið. Hallgrímur segist í samtali við RÚV vonast til að deilur í eigendahópi verði settar niður sem fyrst og  að hann sjái „engin skrímsli undir rúminu“  varðandi eignarhaldið og að menn hafi farið fram úr sér í vangaveltum um þöggun á blaðinu.

Athygli vekur að Reynir Traustason virðist enn bundin ráðningarböndum við blaðið þó hann hafi þar engar skyldur og  samkvæmt bréfi sem hann birti á Facebook  megi ekki koma inn á ritstjórnina, nota netfang sitt þar eða skrifa í eða hafa afskipti af DV eða dv.is. Þetta á að gilda í jafnvel  fram til mánaðarmóta  til að gefa nýrri stjórn ráðrúm til að „kanna fjárhag félagsins og rekstur á þessu ári“.  Um þetta segir Reynir á Facebook: „Sú aðför sem nú stendur yfir gagnvart mér er sú ógeðslegasta sem ég hef upplifað. Í stað þess að segja mér upp með mannsbrag er mér skipað að fara í frí og gefið til kynna að eitthvað misjafnt sé í pokahorninu.“

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.