Stefnuyfirlýsing EFJ

admin • 10. september 2014

 Fyrir Evrópuþingskosningarnar í sumar gekkst Evrópusamband blaðamanna (EFJ) fyrir undirskriftasöfnun meðal frambjóðenda til Evrópuþingsins þar sem farið var fram á stuðning við 10 megin stefnumál sem EFJ telur mikilvæg til að tryggja frjálsa og fjölbreytta fjölmiðlun í álfunni.  Um 200 frambjóðendur skrifuðu undir þessa yfirlýsingu og um 50 þeirra náðu kjöri á Evrópuþingið. EFJ hefur nú birt nöfn þeirra sem undir þeta skrifuðu ásamt stefnumálunum 10  á heimasíðu sinni. Stefnumálin voru þessi: 

1. Lýðræði þarf á sjálfstæðri blaðamennsku að halda 

2. Evrópa þar fá fjölbreytni í fjölmiðlum að halda 

3. Fundafrelsi og frelsi til að semja um eigin kjör á að vera fyrir alla 

 4. Höfundaréttur – sanngjarnir samningar fyrir alla 

5. Vinnuskilyrði hafa áhrif á gæði blaðamennsku 

6. Blaðamennska er samfélagsgæði 

7. Rannsóknarblaðamennska krefst ffrjáls aðgangs að upplýsingum 

8. Fjárfesta ber í framtíð blaðamennsku 

9. Vinnuöryggi 

10. Bygga á upp traust og ábyrgð með siðlegri blaðamennsku.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.