Hvernig stóðu fjölmiðlar sig?

admin • 7. maí 2013

Hvernig stóðu fjölmiðlar sig í aðdraganda kosninga?
Blaðamannafélag Íslands boðar til Pressukvölds þriðjudagskvöldið 7. maí kl. 20, í kvöld. Ætlunin er að skoða hvernig fjölmiðlarnir stóðu sig í aðdraganda kosninga. 
Fundarstjóri er Katrín Pálsdóttir, kennari í HÍ og HR og blaðamaður og félagi í BÍ no: 42!
Frummælendur eru:
Guðbjörg Hildur Kolbeins, doktor í fjölmiðlafræði
Kristján Már Unnarsson, fréttastjóri Stöðvar 2
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, varafréttastjóri Ríkisútvarpsins.
Fundurinn verður haldinn í húsakynnum BÍ í Síðumúla 23 og er öllum opin.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.