Sumarverkföllum hótað á BBC
admin • 8. maí 2013
BBC hefur fengið aðvörun um að búa sig undir sumarverkföll eftir að árlegu launatilboði stofnunarinnar til starfsmanna var hafnað og það sagt algjörlega óásættanlegt. Starfsmenn BBC sem hafa minna en 60.000 pund í laun áttu að fá 600 punda flata hækun samkvæmt tilboðinu sem fram kom í gær, en í því felst að meira en þriðjungur starfsmanna hefði fengið hækkun sem er undir verðbólgu eða 2%.



