Illugi boðar hugsanlegar aðgerðir í haust

admin • 2. september 2016

 Illugi Gunnarsson sagði í samtali við RÚV í dag að hugsanlega væri aðgerða að vænta frá ríkisvaldinu varðandi samkeppnisstöðu einkarekinna miðla fyrir kosningarnar í lok október.  Það sem helst kæmi til greina væri breyting á skattaumhverfi eða aðgerðir varðandi stöðu RÚV á auglýsingamarkaði.  Þessi ummæli koma í kjölfar aðgerða sem nokkrar einkareknar stöðvar gripu til í gærkvöldi með 7 mínútna þögn á ljósvakanum. 

Athygli vekur að Illugi telur ekki hljómgrunn fyrir einhvers  konar styrkjakerfi í fjölmiðlun til að tryggja fjölræði og fjölbreytni líkt og tíðkast hefur á hinum Norðurlöndunum, en horfir m.a. til skattaumhverfis og þess að RÚV gefi eftir auglýsingamarkaði. Ýmsir, þar á meðal talsmenn N4 sjónvarpsstöðvarinnar sem ekki tók þátt í aðgerðunum í gærkvöldi, hafa bent á að  það eitt og sér að RÚV dragi saman seglin á auglýsingamarkaði muni helst gagnast hinum risunum á ljósvaka/fjarskipta markaði, þ.e. Símanum og 365 (Vodafone) og þar með gera lítið fyrir fjölræði í fjölmiðlun.  Ráherra nefnir líka skattaumhverfið og stöðu íslenskra miðla gagnvart erlendum risum en það eru sams konar áhyggjur og viðraðar hafa verið í öðrum löndum m.a. Noregi þar sem stjórnendur Aftenposten  hafa kvatt sér hljóðs um málið.

Sjá frétt RÚV  um málið hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.