"TV storytelling" með Torben Schou

admin • 31. ágúst 2016

Í haust gefst íslenskum blaðamönnum tækifæri til að setjast á námskeið með einum af reyndasta sjónvarpsmanni Danmerkur, Torben Schou.  Námskeiðið heitir frásögn í sjónvarpi (TV-storytelling) og verður haldið í Reykjavík dagana 15. og 16. október. Þar miðlar Torben Schou af reynslu sinni á sviði  gerða heimildamynda, frétta, íþrótta og skemmtunar fyrir sjónvarp.  Það er Norræni blaðamannaskólinn NJC sem býður þessi námskeið. (Endurmenntunarsjóður Blaðamannafélagins veitir styrki til félagsmanna vegna þessa námskeiðs).   Staður fyrir námskeiðið verður tilkynntur síðar.   

Aðgangur er takmarkaður á námskeiðið og allar nánari upplýsingar veitir Sigrún Stefánsdóttir, sviðsforseti hug- og félagsvísindadeildar HA og umsóknir um setu á námskeiðinu ættu einnig að berast til hennar. Sigrún hefur netfangið sigruns@unak.is

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.