Ísraelsmenn verða að axla ábyrgð á árásum á blaðamenn

admin • 25. júlí 2014

Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hefur nú tekið undir í þeim kór ólíkra aðila sem gagnrýna Ísraelsmenn og krefjast þess að þeir verði gerðir ábyrgir fyrir árásum sem þeir gera á blaðamenn sem eru að dekka harmleikinn á Gaza.  Aðildarfélag IFJ, Blaðamannafélag Palestínu (PJS), hefur birt lista yfir þær árásir sem gerðar hafa verið á blaða- og frettamenn sem eru að fjalla um árásirnar, og á þeim lista eru meðal annars þeir fjórir fjölmiðlamenn sem hafa fallið frá því að  átökin hófust. Auk þess er þar að finna þá fjölmiðlamenn sem hafa særst og þau fjölmiðlafyrirtæki og ritstjórnir sem hafa verið skotmörk.

Sjá listann og umfjöllun hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.