Stress áberandi hjá konum sem læra blaðamennsku í Danmörku

admin • 28. júlí 2014

Danskar konur sem eru að læra blaðamennsku í háskólum virðast vera viðkvæmari fyrir stressi en karlkyns kollegar þeirra. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum úr könnun sem unnið er að og verður kynnt betur í vor. Fjallað er um málið á vefsíðu danska Blaðamannsins og kemur þar fram að af tæplega 20% nemenda í blaðamennsku eru svo stressaðir að þeir þurfa á aðstoð fagfólks að halda. En af þeim hópi sem er svona stressaður þá eru 75% konur.  Þetta mikla stress kemur nokkuð á óvart og þá ekki síður hversu kynbundið það er. Blaðamennskunám er nokkuð erfitt í Danmörku, en miðað við ummæli námsráðgjafa á heimsíðu Blaðamannsins danska þá eru það ekki síst stúlkur sem hafa vanist því að standa sig mjög vel í skóla og fá háar einkunnir sem verða stressaðar.  Viðbrigðin að fá ekki áfram jafn háar einkunnir og jafnvel að lenda í vandamálum með námið virðast hafa mjög stressandi áhrif.

Sjá umfjöllun danska Blaðamannsins hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.