Keimlíkir fréttatímar á RÚV og Stöð 2

admin • 3. júní 2013

Fréttir á Stöð 2 og í Sjónvarpinu (RÚV) eru keimlíkar að flestu leylti samkvæmt frumniðurstöðum úr rannsókn sem Valgerður Jóhannsdóttir, Ragnar Karlsson og Þorbjörn Broddason hafa gert og kynnt var á þjóðfélagsfræðiráðstefnu Háskólans á Bifröst á dögunum. Það eru heldur fleiri fréttir á RÚV en á Stöð 2 en lengd frétta er nákvæmlega sú sama. Karlar semja meirihluta frétta á báðum stöðvum og er hlutfallið svipað. Viðmælendum var skipt upp í „hagsmunaaðila“, „stjórnmálastéttina“ og „almennig“ og er hlutfallið svipað milli þessara hópa á báðum stöðvum. Höfundar segja að niðurstöðurnar styðji þá tilgátu að samkeppni milli fréttastofanna leiði til samleitni í efnisvali.

Hér má sjá upptöku af fyrirlestri Valgerðar Jóhannsdóttur um efnið.

Fleiri erindi voru flutt um fjölmiðla á ráðstefnunni:
Pólitísk boðskipti á stafrænum tímum
Spegill samfélags og samtal í heimabyggð

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.