Tækifæri í blaðamennsku

admin • 31. maí 2013

Í gær bloggar Jónas Kritánsson um blaðamennsku og þau tækifæri sem í henni felast. Hann segir m.a.: „Blaðamennska býður þeim margvísleg tækifæri, sem áhuga hafa á fjölmiðlun á miklu breytingaskeiði. ..... Einstaklingar geta komið sér upp búnaði, sem um aldamótin var bara á færi voldugra kvikmyndavera. Við slíkar aðstæður verður mikið rót, störf hverfa og önnur koma. Þeir, sem kunna á nútímann, hafa glæsileg tækifæri.“

Jónas býðst til að aðstoða menn við að nýta þessi tækifæri og hefur sett upp námskeið í blaðamennsku á síðu sinni sem eru öllum aðgengileg. Um námskeiðin segir hann:   „Sameiginlegt markmið námskeiðanna er að nemandi fái þekkingu og færni til að stunda allar tegundir blaðamennsku og fjölmiðlunar á prenti, í sjónvarpi, í útvarpi og í nýmiðlun á netinu.“

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.