Málþing: Mannréttindi á upplausnartímum

admin • 24. janúar 2013

Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnun Háskóla Íslands efna til málþings föstudaginn 25. janúar í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands kl. 13:30.

Heiti málþingsins er Mannréttindi á upplausnartímum. Athyglinni verður meðal annars beint að stöðu mannréttinda og þróun á ólgutímum, réttindum hópa andstætt réttindum einstaklinga, átökum strangtrúarmanna og veraldlega sinnaðra í Mið-Austurlöndum. Fyrirlesarar eru Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, og Magnús Þorkell Bernharðsson, dósent í sögu Miðausturlanda við Williams College í Bandaríkjunum. Stjórnandi málþingsins er Ævar Kjartansson, guðfræðingur og dagskrárgerðarmaður. Dagskrá:

13:30-14:45 Fyrirlestrar
14:45-15:05 Kaffihlé
15:05-16:00 Umræður

Hlutverk Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar er að vinna að rannsóknum og fræðslu í trúarbragðafræði og guðfræði í þeim tilgangi að auka þekkingu og skilning á trúarbrögðum heimsins og stuðla að sáttargjörð ólíkra trúarviðhorfa, vinna gegn tortryggni og efla skilning og umburðarlyndi. Stofnunin er í eigu Þjóðkirkjunnar

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.