Assange gagnrýnir Hollywoodkvikmynd

admin • 28. janúar 2013

Stofnandi WkiLeaks, Julian Assange, gagnrýndi nú fyrir helgina harðlega nýja Hollywoodkvikmynd sem verið er að gera um WikiLeaks, hann sjálfan og samstarfsmenn hans. Assange var að tala í gegnum fjarfundabúnað á fundi Málfundafélags háskólanema í Oxford, en hann er sem kunnugt er fastur í sendiráði Ekvador í London. Í ræðu sinni kallaði hann myndina “samfellda áróðurs árás”. Hann upplýsti að hann hefði komist yfir handrit að myndinni “Fimmta valdið” sem á að koma fyrir almenningssjónir í nóvember næstkomandi. “Þetta er einfaldlega lygi á lygi ofan. Þetta er samfelld áróðursárás á WikiLeaks og á heiður starfsfólksins sem unnið hefur með mér,” sagði Assange. Hann sagði einnig að með þessari mynd væri verið að hella olíu á eldinn varðandi stríðið gegn Írak með því gefa til kynna að þar væri verið að vinna að gerð kjarnorkuvopna.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.