Stjórn BÍ mótmælir aðför að héraðsfréttablöðum

admin • 28. janúar 2013

Stjórn Blaðamannafélagsins samþykkti ályktun á fundi sínum í dag vegna mikillar hækkunar á póstburðargjöldum til héraðsfréttablaða. Ályktunin er eftirfarandi:

„Stjórn Blaðamannafélags Íslands lýsir áhyggjum sínum af fyrirhugaðri hækkun Íslandspósts á póstburðargjöldum. Ljóst er að hækkunin mun koma sér mjög illa fyrir fréttablöð á landsbyggðinni og í sumum tilfellum höggva nærri starfsgrundvelli þeirra. Íslandspóstur er einokunarfélag í eigu ríkisins og hefur þannig örlög þessara viðskiptavina sinna í hendi sér. Það er því furðulegt að hækkun af þessari stærðargráðu sé skellt á héraðsfréttablöðin án nokkurs fyrirvara eða án nokkurra viðræðna. Héraðsfréttablöð eru mikilvæg upplýsingaveita í hinum dreifðu byggðum landsins. Þau njóta engra styrkja eða aðstoðar sem slík en nú virðist einokunarfyrirtæki ríkisins ætla að veita þeim rekstrarlegt náðarhögg. Stjórn Blaðamannafélags Íslands telur þetta aðför að héraðsfréttablöðum landsins.“

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.