Myndskeið af hryllilegu morði blaðamanns talið ekta

admin • 20. ágúst 2014

Sérfræðingar stjórnvalda í Bandaríkjunum hafa staðfest að myndband sem sýnir grimmilegt morð  liðsmanna Isis á blaðamanninum James Foley sé ekta. Morðið hefur verið fordæmt víða um heim og það vekur sérstakan ugg í Bretlandi að sá sem talar á myndbandinu virðist tala með breskum hreim og vera breskur.  Philip Hammond utanríkisráðherra Bretlands segir þátttöku  fjölmargra breskra þegna í  baráttu Isis áhyggjuefni sem undirstriki alþjóðlegt eðli málsins – og að Íslamska ríkið sé raunveruleg ógn við öryggi í Bretlandi. Í myndbandinu bregður einnig fyrir myndum af öðrum fanga sem virðist vera bandaríski blaðamaðurinn Steven Sotloff og þeirri mynd fylgir viðvörun og skilaboð   til Baraks Obama um að örlög blaðamannsins velti á viðbrögðum forsetans.

James Foley var mjög reyndur blaðamaður og hafði sagt fréttir af stríðshrjáðum svæðum lengi. BBC tók meðal annars viðtal við hann árið 2012 um mikilvægi fréttaflutnings af átakasvæðum og birtir það viðtal í samantekt um málið sem sjá má hér í heild sinni

Sjá frekari umfjöllun hér og hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.