Færri blaðamenn hafa að aðalstarfi að fylgjast með stjórnsýslu og pólitík í fylkjum BNA

admin • 18. ágúst 2014

Umræða hefur skapast um gæði fréttaflutnings af opinberum stofnunum (Statehouse buildings) í hinum 50 fylkjum Bandaríkjanna vegna sílækkandihlutfalls blaðamanna  sem hafa hafa það að aðalstarfi að fylgjast með málum þar. Vekur þetta upp spurningar um aðhaldshlutverk fjölmiðla og stöðu fjölmiðlanna í lýðræðisferlinu í BNA.  Með "statehouse bulindings" er verið að vísa til stjórnsýslustofnana fylkjanna og löggjafasamkoma þeirra.  Samkvæmt nýrri rannsókn Pew Research Center þá eru 1,592 blaðamenn sem dekka þessar stofnanir og starfsemi þeirra í Bandaríkjunum og þar af er aðeins tæpur helmingur, eða 741 sem gerir það í fullu starfi. Aðrir eru í hlutastarfi eða lausamennsku við að sinna þessum málum. Það þýðir að um 15 blaðamenn sem hafa að aðalstarfi að fylgjast með stjórnsýslu og stjórnmáum í hverju ríki, en það er þó mjög misjafnt milli ríkja. Í Texas þar sem þessi tala er hæst eru 53 blaðamenn í fullu starfi við þetta, en fæstir í Suður Dakóta þar sem þeir eru bara tveir.

Undanfarin ár hefur blaðamönnum sem sinna þessum mikilvægu málaflokkum verið að fækka mikið og  hefur þeim fækkað um 35% á síðusta áratug.

Sjá ítarlegri umfjöllun hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.