"Rukka" fyrir aðgang að fréttum á netinu

admin • 15. ágúst 2014

Í Danmörku hyggst blaðið Metroxpress prufa nýjar leiðir til að „rukka“ lesendur fyrir lestur frétta þess á netinu.  Ekki er þó hugmyndin að fara fram á peningalega greiðslu heldur verða væntanlegir lesendur rukkaðir um upplýsingar og aðgang að stafrænum vinahópi þeirra.  Til þess að fá möguleika til að lesa fréttir og umfjallanir munu menn þurfa að  gefa upp netfang og deila efni  á samfélagsmiðlum.

Að sögn framkvæmdastjóra Metroxpress, Thomas Raun, þá er um tilraunaverkefni að ræða sem verður í gangi í tvær vikur og kannað hvernig lesendur bregðast við. Tilgangurinn er að sögn framkvæmdastjórans að fá frekari upplýsingar um lesendahópinn til að geta sniðið efni  og ekki síður auglýsingar að þörfum hans.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.