NUJ semur við Guardian

admin • 28. febrúar 2013

Guardian News & Media (GNM) sem meðal annars gefur út Guardian, Observer og guardian.co.uk, hefur samið við Blaðamannasamband Bretlands NUJ um sparnaðaraðgerðir hjá fyrirtækinu. Þar með er afstýrt aðgerðum af hálfu NUJ sem boðaðar höfðu verið vegna 7 milljón punda niðurskurðar sem boðaður hafði verið hjá fyrirtækinu í fjáhagsáætlun sem birt var á síðasta ári. Samkvæmt þeim áformum stóð til að fara út í stórfelldar uppsagnir ef ekki væri hægt að ná markmiðunum með öðrum hætti.
Sjá einnig hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.