Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna fyrir 2012
Hér á eftir eru birtar tilnefningar dómnefndar til blaðamannaverðlauna fyrir árið 2012. Tilnefningar eru þrjár í hverjum flokki, en flokkarnir eru nú fjórir þar sem flokkurinn "Viðtal ársins" er nú með í fyrsta sinn. Samkvæmt reglugerð verðlaunanna eru tilnefningar dómnefndar birtar viku fyrir afhendingu verðlaunanna sjálfra en Blaðamannaverðlaunin verða afhent í Gerðarsafni á laugardaginn kemur, 9. mars kl. 15:00. Tilnefningarnar eru sem hér segir:
Umfjöllun ársins
Egill Ólafsson, mbl.is (Morgunblaðinu)
, fyrir vandaðan, skjótan og alhliða fréttaflutning af illviðri og snjókomu í september 2012, þar sem frá upphafi var dregin fram og skilgreind yfirvofandi ógn fyrir fólk og búfénað.
Kristjana Guðbrandsdóttir, DV , fyrir viðamikinn og vandaðan greinaflokk um einhverfu, ýmsar birtingarmyndir hennar og vandamál við greiningu, ekki síst hjá stúlkum.
Sunna Valgerðardóttir, Fréttablaðinu , fyrir áhrifamikla, heildstæða og vel unna röð fréttaskýringa um stöðu geðfatlaðra.
Rannsóknarblaðamennska
Andri Ólafsson, Stöð 2
, fyrir afhjúpandi fréttir af aðkallandi fjárhagsvanda hjúkrunarheimilisins EIR
Jóhann Bjarni Kolbeinsson, fréttastofu RÚV , fyrir uppljóstrandi og ítarlega umfjöllun um kadmíum í áburði annars vegar og notkun iðnaðarsalts í matvælum hins vegar.
Jóhannes Kr. Kristjánsson, Kastljósi , fyrir að draga fram óbirtar og gagnrýnar skýrslur Ríkisendurskoðunar um bókhaldskerfi ríkisins og fyrir að varpa, ásamt Helga Seljan ljósi á umdeild atriði varðandi innleiðingu kerfisins.
Viðtal ársins
Anna Brynja Baldursdóttir, Vikunni
, fyrir opinskátt viðtal við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup sem tjáði sig þar með einlægum hætti um bæði persónuleg mál sín og atriði sem varða embættið.
Sigmar Guðmundsson, Kastljósi , fyrir sérstaklega áhrifaríkt og sterkt viðtal við Eirík Inga Jóhannsson, sjómann sem komst lífs af þegar togarinn Hallgrímur fórst.
Skapti Hallgrímsson, Morgunblaðinu , fyrir sérstaklega vel skrifað og lifandi mannlífsviðtal við eistneska tónlistarmanninn Valmar Valjaots.
Blaðamannaverðlaun ársins
Ingi Freyr Vilhjálmsson, DV
, fyrir umfjöllun um fiskveiðar Íslendinga við Afríku og ýmis skrif um viðskipti og uppgjör í kjölfar hrunsins.
Ragnar Axelsson, Morgunblaðinu , fyrir merka umfjöllun og myndir af stórum pollum á Grænlandsjökli sem voru til marks um óvenju mikla bráðnun Grænlandsjökuls.
Una Sighvatsdóttir, mbl.is (Morgunblaðinu) , fyrir greinaflokkinn Váin á vegum , þar sem fjallað var um umferðarslys frá mörgum sjónarmiðum með því að tvinna saman ýmsar fjölmiðlagáttir s.s. prentmiðilinn, netið, gagnvirka grafíska framsetningu og myndskeið.



