Nýir kjarasamningar undirritaðir í dag

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 20. maí 2024

Nýir kjarasamningar Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins voru undirritaðir í dag. Samningarnir byggja á grunni Stöðugleikasamningsins sem gerður var milli SA og sambanda og félaga ASÍ í mars sl. Samkvæmt samningunum taka launahækkanir gildi um næstu mánaðamót og gilda afturvirkt frá 1. febrúar. Kjarasamningarnir verða kynntir félagsmönnum á næstu dögum og í framhaldi verður haldin rafræn atkvæðagreiðsla um þá. Samningarnir eru annars vegar aðalkjarasamningur BÍ við SA, sem  Árvakur, RÚV og SÝN eiga aðild að, og hins vegar kjarasamningur milli Félags fréttamanna og RÚV. Kjaraviðræður við aðra miðla fara fram í kjölfar þessara undirritana og byggja á aðalkjarasamningnum.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.