Nýr framkvæmdastjóri tekin til starfa

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 23. maí 2024

Freyja Steingrímsdóttir hefur hafið störf sem nýr framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands. Framkvæmdastjóri BÍ hefur umsjón með og ber ábyrgð á faglegu starfi á vettvangi félagsins, daglegum rekstri og áætlanagerð, sér um stefnumótun í samráði við stjórn og kemur fram fyrir hönd félagsins eftir því sem við á og gætir hagsmuna þess. 

Freyja er stjórnmálafræðingur með reynslu af hagsmunabaráttu og starfsemi stéttarfélaga, samskiptum við fjölmiðla, stefnumótun, stjórnsýslu og ýmis konar málefnaherferðum. Hún hefur undanfarin ár starfað sem samskiptastjóri BSRB, stærstu heildarsamtaka opinbers starfsfólks á Íslandi. Hún vann áður á Alþingi sem aðstoðarmaður formanns Samfylkingarinnar og fyrir það sem ráðgjafi hjá Indigo Strategies í Brussel þar sem hún stýrði meðal annars verk­efn­um fyr­ir regn­hlíf­ar­sam­tök evr­ópskra verka­lýðshreyf­inga og sinnti bæði stefnu­mót­un og hags­muna­bar­áttu í þágu launa­fólks í Evr­ópu. Hún hef­ur einnig starfað hjá Festu - miðstöð um sam­fé­lags­ábyrgð fyr­ir­tækja, Eft­ir­lits­stofn­un EFTA og Evr­ópuþing­inu.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.