Nýtt hlaðvarpsstúdíó fyrir félaga

Guðmundur Pálsson • 21. ágúst 2026

Blaðamannafélagið hefur útbúið aðstöðu á skrifstofu félagsins fyrir félaga sem vilja taka upp hlaðvarp. Aðstaðan er í boði án endurgjalds fyrir alla félagsmenn á opnunartíma skrifstofunnar. Hægt er að bóka tíma með því að senda tölvupóst á press@press.is eða hringja í síma 553 9155.

Blaðamannafélagið mun einnig taka upp og miðla sínu eigin hlaðvarpi sem er ætlað að styðja við faglega starfsemi félagsins og upplýsa félaga og almenning um málefni tengd blaðamennsku á Íslandi. Í því getur falist umfjöllun um störf blaðamanna og starfsemi fjölmiðla í samtímanum og mikilvægi blaðamennsku fyrir lýðræðislega umræðu en einnig upprifjun á málum sem blaðamenn hafa unnið í gegnum tíðina, saga blaðamennsku á Íslandi og fleira.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.