Gagnlegar fréttir: námskeið í gagnadrifinni sagnalist

Freyja Steingrímsdóttir • 20. ágúst 2026

Blaðamannafélag Íslands stendur fyrir tveggja daga námskeiði í gagnadrifinni sagnalist (e. data storytelling) dagana 29. og 30. október 2026 í húsakynnum félagsins í Síðumúla. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á hvernig vinna má fréttir úr flóknum og oft þurrum gögnum, setja þau í samhengi og umbreyta þeim í aðgengilegar fréttir og sögur sem ná til fólks.

Kennarinn er Anna Feigenbaum, höfundur bókarinnar The Data Storytelling Workbook og prófessor í fjölmiðlum við Háskólann í Glasgow.

Á námskeiðinu færðu að kynnast

  • lykilþáttum gagnadrifinnar sagnalistar (e. data storytelling)
  • hvernig finna má gögn sem erfitt er að nálgast
  • aðferðum við skapandi úrvinnslu og myndræna framsetningu gagna
  • hagnýtum æfingum um hvernig beita má þeim strax í starfi
  • hvaða siðferðilegu álitaefni geta komið upp við miðlun gagna

Námskeiðið er ætlað blaðamönnum og öðrum þeim sem vinna við miðlun upplýsinga og gagna, og eru félagar í BÍ. Námskeiðið verður frá 9:00 - 15:00 báða daga.

Skráningarfrestur er til og með 20. október. Pláss á námskeiðið eru takmörkuð.

Verð: 24.900kr.
Kennitala: 600195-3369
Reikningsnúmer: 0130-26-801894

Um kennarann:

Anna Feigenbaum er einn helsti sérfræðingur heims í gagnadrifinni sagnalist, með sérstaka áherslu á miðlun vísindaefnis. Hún er höfundur bókarinnar The Data Storytelling Workbook , þar sem hún setur fram hagnýtar aðferðir til að vinna áhrifaríkar sögur úr flóknum gagnasöfnum.

Anna hefur unnið sem ráðgjafi og leiðbeinandi fyrir stofnanir á borð við NHS, fjölmiðla og háskóla um allan heim og hafa rannsóknir hennar m.a. hlotið styrki frá Sameinuðu þjóðunum. Verk hennar hafa m.a. skilað sér í Webby-verðlaunuðum gagnaverkefnum, myndasögum og safnasýningum, auk fjölda ritrýndra greina og bóka.

SKRÁNING

Ath. sjóðfélagar Endurmenntunarsjóðs BÍ geta sótt um endurgreiðslu á 75% af námskeiðsgjaldi og lausamenn styrk fyrir helmingi námskeiðsgjalds.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.