Páska- og sumarúthlutun orlofshúsa
Freyja Steingrímsdóttir • 16. janúar 2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna úthlutunar í orlofshús BÍ um páska og í sumar í orlofshúsunum á Akureyri, í Stykkishólmi og í Brekkuskógi.
Umsóknarfresti lýkur 1. mars vegna páskaúthlutunar og 10. mars vegna sumarúthlutunar og fer úthlutun fram í vikunni á eftir.
Úthlutun telst staðfest eftir að greiðsla hefur borist innan tilskilins frests.
Sótt er um á orlofshúsavefnum.
Sumarmánuðunum þremur, 12-14 vikum, auk páska, er úthlutað sérstaklega og gilda neðangreindar úthlutunarreglur.
- Tímasetningar umsóknartímabila skulu auglýstar.
- Forgang hafa þeir sem eru greiðandi félagar í orlofshúsasjóð.
- Úthlutun á orlofshúsum á hverju af þremur orlofssvæðum BÍ er sjálfstæð, þannig að úthlutun á einu svæði hefur ekki áhrif á úthlutun á öðrum svæðum.
- Félagsnúmer ræður úthlutun þar sem félagsnúmerið endurspeglar lengd félagsaðildar.
- Félagsnúmer víkur fyrir hærra númeri séu styttra en sex ár frá síðustu úthlutun á hverju orlofssvæði fyrir sig.



