Rússnesk afskipti af kosningunum í Moldóvu

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 16. janúar 2026

Rannsókn BBC Eye Investigations, sem unnin var með öðrum rannsóknarteymum BBC og samstarfsaðilum í Evrópu, sýndi að net tengt rússneskum hagsmunum reyndi að grafa undan stöðu stjórnarflokksins PAS, mið-hægri Evrópusinnaðs flokks, fyrir kosningarnar í lok september. Fólki var boðin greiðsla fyrir að taka þátt í að dreifa pólitísku efni og röngum upplýsingum á samfélagsmiðlum sem beindust gegn PAS.

Þátttakendunum var jafnframt falið að taka þátt í framkvæmd gervikönnunar í nafni stofnunar sem er ekki til, sem brýtur í bága við reglur um skoðanakannanir í Moldóvu. Niðurstöðurnar, sem voru ómarktækar og hannaðar til að villa um fyrir kjósendum, voru síðar birtar á netinu og voru þvert á opinberar kannanir og lokaniðurstöður kosninganna þar sem PAS var í forystu.

Sérfræðingar sem BBC ræddi við segja að málið sé skýrt dæmi um hvernig skipulögð íhlutun erlendra aðila og markviss upplýsingaóreiða geti grafið undan bæði lýðræðisferlum og starfsskilyrðum fjölmiðla í Evrópu.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.